PásaGrettla
... sjáumst á face-inu.Sumar í ErlóGrettla
Grettla var búin að gleyma hvað það er yndislegt að eiga heima hér í holtinu á sumrin. Skógurinn alveg við dyrnar og börnin rölta rétt út fyrir dyr og koma berjablá til baka. Bara æði.Grettla er líka farin að stunda svokallaðar I-pod göngur. Nýlega búin að uppgötva hvað það er æðislegt að fara á bókasafnið og ná mér í sögur á geisladiskum. Ótrúleg róandi að láta lesa fyrir sig.
Jæja ekki meira í bili. Farið þið varlega í verslunarmannahelgarumferðinni.
Kveðja Grettla
VoxFox RocksGrettla
Vá ég var að koma af frábærum tónleikum. Karen mín bauð mér með á tónleika VoxFox. Vinkona hennar syngur með þessari 6 manna "grúbbu". Allt a cappella (án undirleiks). Þau voru bara frábær. Þvílík sönggleði, húmor og góður söngur.
Endilega kíkið á þau:
www.voxfox.net (eða bara voxfox á faceinu)
Næstu tónleikar verða 2. sept. Mæli með þessum.
Kveðja Grettla
Endilega kíkið á þau:
www.voxfox.net (eða bara voxfox á faceinu)
Næstu tónleikar verða 2. sept. Mæli með þessum.
Kveðja Grettla
SumarbloggGrettla
Jæja ætli Grettla litla brjóti ekki hefðina og komi með eins og eitt stykki sumarblogg.Grettla skellti sér sem sagt til London með saumaklúbbnum. Og vá þvílík ferð. Þrennt stendur upp úr (fyrir utan frábæran félagsskap)
1. Mama mia. Frábær sýning og svo gaman að fara með stelpunum því við höfum tjúttað mikið við þessi lög í gegnum tíðina.
2. Benihana. Ég valdi þennan stað fyrir okkur. Japanskur matur og eldað fyrir framan mann. Bara snilld.
3. DDK. Vegna óvenju mikillar dagdrykkju neyddumst við til að stofa DAGDRYKKJUKLÚBBINN. Og ég var að sjálfsögðu kosinn formaður! WONDER WHY!
Hér kemur ein mynd sem lýsir stemmningu ferðarinnar algjörlega:

Kveðja Sumar-Grettla
Í tilefni afmćlisdagsins.Grettla
Já takk kærlega fyrir afmæliskveðjurnar. Verð að skella inn myndum frá 1988 sem vinkona mín setti inn á saumakúbbs síðuna okkar. OMG
Svo er hér önnur af mér og myndasmiðnum, henni Sylvíu minni, á leið í partý.

Sjáiði toppinn. Vá flottar gellur.
Kveðja Grettla
100 dívur fastar í BerlínGrettla
Af slóðinni: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/28/farthegar_strand_vegna_velarbilunar/
Um 100 meðlimir Kvennakórsins og Léttsveitar Reykjavíkur eru strandaðir á flugvelli í Berlín. Seinkun hefur orðið á flugi Iceland Express vegna vélarbilunar. Er gert ráð fyrir að brottför frestist um sex klukkustundir.
Að sögn Margrétar Þorvaldsdóttur sem fer fyrir hópnum er leiðinlegt að lenda í töf af þessu tagi, en hópurinn lætur fara vel um sig á flugvellinum.
Segir Margrét kórinn hafa átt góða ferð til Berlínar, en haldnir voru tónleikar á laugardag í Admirals Palace.
Grettla
Koma svoGrettla
... stelpur. Það væri nú gaman að fá alla vegana eitt kunnuglegt andlit í salinn. Hvernig væri að skella sér svona einu sinni á tónleika. Á enn miða!Knús Grettla
p.s hóta hér með bloggfríi ef engin kaupið miða :-Þ
VOR-tónleikarGrettla
Já elskurnar vorboðinn ljúfi Léttsveit Reykjavíkur er með tónleika 22. og 24. apríl. Miðaverð 2200 kr. Æðisleg létt og skemmtileg íslensk og þýsk lög.Á enn miða ef einhver hefur áhuga. En þeir fara fljótt því það er alltaf uppselt.
Knús Grettla
BloggleysiGrettla
Það er eitthvað lítið um blogg þessa dagana. Komið með blogghugmyndir fyrir Grettlu litlu.
Um hvað á ég að blogga?
Kveðja Grettla
